Smelltu hér fyrir bækling í PDF
Unaðsdagar í Hólminum
Tilboðsdagar eldri borgara
Ógleymanleg stund á einstökum stað

Hópurinn á Arnarstapa
Hótel Stykkishólmur býður eldri borgurum upp á einstakar tilboðsferðir vor 2012. Þar geta gestir notið bestu þæginda í hjarta þessa fallega bæjar auk þess að boðið er upp á fjölbreytta dagskrá, stórbrotið umhverfi og góðan félagsskap og menningarferð á söguslóðir og náttúruperlur Snæfellsness skoðaðar. Verð fyrir dvöl frá mánudegi til föstudags er aðeins 35.000 krónur á mann.
Dagsetningar: 19-23 mars, 26-30 mars, 16-20 apríl, 23-27 apríl, 7-11
maí.
Innifalið í verðinu er:
Hótel Stykkishólmur býður eldri borgurum upp á einstakar tilboðsferðir vor og haust 2011. Þar geta gestir notið bestu þæginda í hjarta þessa fallega bæjar auk þess að boðið er upp á fjölbreytta dagskrá, stórbrotið umhverfi og góðan félagsskap og menningarferð á söguslóðir og náttúruperlur Snæfellsness skoðaðar. Verð fyrir dvöl frá mánudegi til föstudags er aðeins 35.000 krónur á mann.
- Gisting frá mánudegi til föstudags. Öll herbergi eru nýlega uppgerð með sérbaði, hárþurrku, sjónvarpi, útvarpi og síma.
- Morgunmatur og kvöldverður. Boðið verður upp á morgunverðarhlaðborð alla morgna og þriggja rétta kvöldverð alla daga. Einnig verður sameiginlegur hádegisverður einn daginn.
- Frítt í sund og golf. Sundlaug Stykkishólms státar bæði af inni- og útilaug, vatnsrennibraut og frægum heitum pottum sem í rennur heilsuvatn. Víkurvöllur er staðsettur rétt við hótelið. Þetta er góður 9 holu völlur sem hentar breiðum hópi kylfinga.
- Kvöldskemmtanir og dans öll kvöldin. Boðið verður upp á spilastund, bingó og dans að ógleymdu skemmtikvöldi með Aftanskini, félagi eldri borgara í Stykkishólmi. Þar má búast við bestu skemmtan enda eru Hólmarar annálaðir fyrir blómlegt félagslíf.
Dagskrárstjóri er Gísli Blöndal, fararstjóri og leiðbeinandi.
Unaðsdagar í Hólminum er einstakt tilboð fyrir eldri borgara vor og haust 2011, þar sem áhersla er lögð á allt það besta sem Stykkishólmur hefur uppá að bjóða.
Hafðu samband í síma 430 2100
Hafðu samband í síma 430 2100 og fáðu frekari upplýsingar. Eins er hægt að fá bækling og dagskrá sent pósti eða í tölvupósti sé þess óskað. Þá munum við bjóða upp á 30 til 40 mínútna kynningu á félagsfundum hjá félögum eldri borgara þar sem því verður við komið.
Í hjarta Hólmsins
Hótel Stykkishólmur er eitt glæsilegasta hótel á landsbyggðinni. Öll herbergi hótelsins og salir þess státa af ómótstæðilegu útsýni yfir bæinn og út á náttúruperluna Breiðafjörð. Veitingastaður hótelsins er í hæsta gæðaflokki og notar aðeins besta hráefni. Þá er skemmtisalurinn á hótelinu hinn glæsilegasti og vel tækjum búinn.
Hótel Stykkishólmur er í hjarta Stykkishólms og er stutt að sækja hvers kyns afþreyingu. Sundlaug Stykkishólms er í göngufæri frá hótelinu en þangað kemur fólk víða að til að baða sig í vatninu í heitu pottunum. Í þá rennur vottað heilsuvatn, sem kemur beint úr borholunni við Hofstaði.
Umsagnir gesta
Umsagnir gesta á Unaðsdögum í Hólminum hafa verið afar góðar og vinsamlegar. „Mjög gott hótel, stór og rúmgóð herbergi, frábær matur og einstaklega elskulegt starfsfólk. Fín sundlaug rétt hjá og bærinn aðlaðandi“ segir Kristinn V. Jóhannsson á Neskaupstað
Smelltu hér fyrir bækling í PDF