Skíðasvæðin
Skíðasvæði við allra hæfi
Hringhótelin eru vel staðsett gagnvart mörgum bestu skíðasvæðum landsinns.
- Hótel Akureyri - Hlíðarfjall.
- Hótel Reyðarfjörður - Oddskarð.
- Hótel Egilsstaðir - Stafdalur.
- Arnarstapi - Snæfellsjökull.
Skíðasvæðið Oddskarði / austfirsku alparnir - 20 mín akstur frá Reyðarfirði

Oddskarð - útsýni niður á firði
Skíðasvæðið í Oddskarði sem oft er nefnt austfirsku alparnir er milli Eskifjarðar og Norðfjarðar.
Oddskarð er eitt fjölbreyttasta skíðasvæði landsins. Þar hefur verið byggt markvisst upp til að gera svæðið að skíðaparadís. Þar er lyfta sem hefst í 513 metra hæð og þegar upp á topp er komið, í 840 metra hæð yfir sjávarmáli, blasir við ægifagurt ýtsýni yfir Reyðarfjörðinn. Einnig er barnalyfta og góð aðstaða fyrir brettafólk. Brekkur við lyftur eru flóðlýstar og allar brekkur troðnar daglega
Um páskana er haldið páskafjör þá er mikið um að vera og viðburðir af ýmsu tagi
Opnunartími:
Mánud. til Föstud. frá kl.17:00 til 20:00 Laugard. og Sunnud. frá kl.11:00 til 16:00
Upplýsingar um daglegan opnunartíma er að finna í síma 476-1465 og í símsvara 878-1474
Skíðasvæðið Stafdal - 15 mín akstur frá Egilsstöðum

Stafdalur
Skíðasvæðið í Stafdal sem liggur á milli Efri-stafs og Neðri-stafs í Fjarðarheiði, aðeins 15 mín akstur frá Egilsstöðum. Á svæðinu er 1 km löng diskalyfta og byrjendalyfta rétt ofan við skíðaskálann með þægilegum halla. Skíðabrekkurnar í Stafdal eru við allra hæfi auk þess sem svæðið er flóðlýst. Skíðasvæðið í stafdal er talið eitt besta svig, skíða og brettasvæði landsins.
Stutt í víðáttuna fyrir vélsleðafólk. Vélsleðafólk hefur víðáttu og auðfarnar slóðir í allar áttir til að ferðast um frá Stafdal. Aðeins tekur rúma klukkustund að skjótast á vélsleða að hinum frægu Dyrfjöllum.
Opnunartími:
Upplýsingar um svæðið er að finna á símsvara þess, 878-1160 eða á upplýsingamiðstöðinni í síma 472-1551.
Snæfellsjökull Arnarstapi - Ferðir með snjótroðara frá Arnarstapa

Á toppnun - Snæfellsjökull
Ferðaþjónustan Snjófell hefur í ferðum á Snæfellsjökul tvo snjótroðara og 12 snjósleða. Hámarksflutningsgeta pr. ferð er því um 64 manns. Um 40 manns á troðara og 24 á sleða.
Ferðir á Snæfellsjökul á snjósleðum eða snjótroðara er ógleymanleg upplifun og sérlega ánægjuleg stund. Af jöklinum er stórbrotið útsýni sem gefur einstaka möguleika til myndatöku og veitir ógleymanlega upplifun.
Farið er í ferðir á jökulinn kl: 10:00, 12:00, 14:00, 16:00, 21:00 og 23:00. Þetta er margrómuð ferð á Snæfellsjökul sem tekur um 2 klst. Ferðir síðar á kvöldin og miðnæturferðir eru farnar eftir því sem eftirspurn kallar á.
Athugið að mikilvægt er að panta far í allar ferðir.
Opnunartími:
Opnunartími er breytilegur upplýsingar og pantanir í síma 435 6783 og farsíma : 865-3459
Hlíðarfjall Akureyri - 10 mín akstur frá Akureyri

Hlíðarfjall
Í Hlíðarfjalli er sannkölluð skíðaparadís rétt við bæjardyr Akureyrar. Þar eru frábærar aðstæður til skíða- og snjóbrettaiðkunnar. Lyfturnar á svæðinu geta samanlagt flutt 4,440 manns á klst. en samfelldur hæðarmunur á skíðabrekkunum er um 500 metrar
Veitingasala fer fram í skíðahótelinu og í Strýtu. Heitir og kaldir réttir eru á boðstólum.
Skíða og snjóbrettaleiga: Í Hlíðarfjalli er starfrækt skíða- og snjóbrettaleiga þar sem hægt er að leigja allan búnað, þar með talið skíðagalla. Í skíðaleigunni er boðið upp á allar helstu nýjungar eins og carving skiði og snjóbretti. Í skíða- og snjóbrettaleigunni er hægt að fá lánaða skíðahjálma. Í versluninni er hægt að kaupa skíðagleraugu, vettlinga, húfur og annað er tengist skíða- og snjóbrettaiðkun.
Opnunartími:
Sími skíðasvæðisins: 462-2280
Upplýsingasímsvari: 878-1515