Hótel Egilsstaðir
Í miðbæ Egilsstaða
Hringhótel Egilsstaðir er staðsett í miðbæ Egilsstaða og því í næsta nágrenni við verslanir, kaffihús, banka og sundlaug bæjarins. Allar náttúruperlur Austurlands eru innan seilingar fyrir gesti hótelsins, sama hvort leiðin liggur í Hallormsstaðaskóg eða í skrímslaleit á bökkum Lagarfljóts.
Hótelið hefur 39 herbergi, sem öll eru búin baðherbergi og sjónvarpi ásamt þráðlausu interneti.
Þá er einnig að finna þrjá misstóra fundar- og veislusali á hótelinu.