Fjardarhótel Reydarfjördur
Stórbrotin náttúrufegurð
Njóttu fagurrar náttúru Reyðarfjarðar, stærsta fjarðar á Austfjörðum, á meðan á dvöl þinni á hótelinu stendur. Reyðarfjörður liggur fyrir miðjum austfjörðum og er því ákjósanlegur áfangastaður fyrir þá sem vilja njóta þess besta sem Austfirðir bjóða upp á.
Á Reyðarfirði er margskonar þjónusta og afþreyingarmöguleikar s.s banki, bensínstöð, verslun, heilsugæsla, sundlaug, íþróttahús, merktar gönguleiðir og stríðsminjasafn. Stutt er í næstu byggðarkjarna 13 km á Eskifjörð. 18 km á Fáskrúðsfjörð og 32 km á Egilsstaði.
Fjarðarhótel Reyðarfjörður er búið tuttugu notalegum herbergjum, öllum með þráðlausu interneti.
Listakokkar framreiða ljúffenga rétti á veitingastað hótelsins og gestir geta slakað á á hótelbarnum. Hótelið er einnig búið fundarherbergjum með öllum helsta tæknibúnaði.